Sumarið löngu komið og margt gott búið að gerast, bæði í hlaupum, þjálfun og öllu saman.
Langt en ótrúlega frábært innanhústímabil löngu búið í hlaupunum. Það var æft hraða þrisvar í viku, fullt af keppnum osfrv. Æfingatímabilið gekk vel hjá mér persónulega, náði inn mjög góðum æfingum og engin eymsli né meiðsli enda orðin vel sjóuð í því að æfa vel og skynsamlega, nógu mikið þannig að ég nái árangri, en ekki of mikið þannig að ég mögulega meiðist, hlusta á líkaman og allt það. Næringin skiptir þarna gríðarlega miklu máli, sérstaklega fyrir og eftir æfingar.
En miðað við hvað æfingar gengu vel í haust og vetur fannst mér ég ekki ná því útúr mér í keppnunum, en það er stundum svoleiðis, þær voru samt allar snilld og fara beint í reynslubankan. Ég keppti aðallega í 1500m á haustin og veturnar á brautinni, en það var ekki fyrr en í apríl sem ég náði loksins inn góðri 4 sek bætingu í 1500m (4:39mín), en apríl er tímabil sem ég er oft að toppa. Ég fór síðan fljótlega eftir þetta í mjög góða æfingaferð með frjálsíþróttadeild FH til Torrevieja í 10 daga. Hraðaæfingar annanhvern dag, styrktaræfingar og notið lífsins þess á milli.
Daginn eftir að ég flaug heim þaðan var Íslandsmótið í 5km á sumardaginn fyrsta, Víðavangshlaup ÍR þar sem ég náði 16sek bætingu á götu 17:38mín sem er fínt í bili, en markmiðið er stærra.
En sumarið er rétt að byrja og nóg eftir, fullt af skemmtilegum markmiðum frammudan.